Afmćlisblogg !!
13. mars 2008 klukkan 09:49
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Helgi, hann á afmæli í dag !
Til hamingju með afmælið ástin mín og vonandi áttu góðan dag :*
Lofjú :*
Þín Ásta
Til hamingju með afmælið ástin mín og vonandi áttu góðan dag :*
Lofjú :*
Þín Ásta
Guten tag !
05. mars 2008 klukkan 14:08
Já ég er víst löööngu búin að reikna þessa tilgátuprófun í aðferðafræði eins og ég sagðist ætla að fara að gera í blogginu hér fyrir neðan !! Ég er líka búin með öll jólaprófin og gékk líka bara svona ljómandi vel :) En já eftir jólaprófin kom hið langþráða jólafrí, vá hvað það var gott !! Bara legið í leti og haft þap næs með fjölskyldunni. Ég var hér í bænum um jólin en fór til eyja um áramótin. Fínt að komast aðeins heim og áramótin voru alveg stórfín en ég ætla nú ekki að hrósa þessu balli neitt mikið.
Allavega... ég kom í bæinn í byrjun jan og tjillaði bara meira :) svo hófst skólinn og er hann ennþá í fullum gangi. Það fer bara að styttast í vorprófin en próflestrarfríið byrjar 18 apríl og svo prófin 30 april !!!
Annars er ekki mikið að gerast hja mér fyrir utan skólann, ég og Donna höfum það bara gott hér í Garðabænum ásamt Elísu systir. Ég er reyndar orðin nokkur konar aupair hjá Einari bróður en ég sé um að sækja krakkana í skólann og leikskólann og passa þau þangað til foreldrarnir koma heim úr vinnunni. Er reyndar í fríi þessa vikuna þar sem fjölskyldan ákvað að skreppa til Frakklands á skíði..hvað er málið að taka aupairina ekki með, ég spyr nú bara !?
Svo er bara sumarið framundan og vá hvað ég hlakka til :) Er búin að sækja um vinnu á nokkrum stöðum og vonandi fæ ég bara jákvætt svar allavega frá einum :)
En ég ætla að fara að taka mig á í þessum bloggheimi, bara svona aðeins til að láta fólk vita að ég er enn á lífi hehe :) Við stelpurnar þurfum líka að fara að byggja upp þessa holy síðu okkar, koma með aðeins menningarlegri blogg ;)
Túrúlú...
Ásta out !
próflestur....
26. nóvember 2007 klukkan 14:03
okey maður les fyrir lokapróf 2 sinnum á ári, akkuru finnst mér ég þá alltaf vera að læra fyrir lokapróf ?! tíminn líður of hratt skal ég ykkur segja ! En já jólaprófalesturinnn hófst í seinusru viku, Helgi kom svo til mín og vorum við uppí bústað alla helgina að læra ! Svaka gott að geta bara komist í algjöra ró og næði og hella sér í lærdóminn :) En ég byrja í prófum 11 des og er búin 19 des....þannig að ég hef þá 4 daga til að versla jólagjafir, skrifa jólakort, kaupa jólakjól og shæna mig aðeins til fyrir jólin !
Ég er líka búin að ákveða að eftir jól verður sko tekið eitt stykki megrunarátak !! Já ég er bara ekkkert mjó lengur, bara orðin bolla !! Þannig að ég stefni á ræktina og LR kúrinn eftir áramót og ætla að missa alveg fullt af % í líkamsfitu takk fyrir ! Vildi bara að ég hefði einhvað af þessum aga sem anorexíusjúklingar hafa ( og ég er ekki að segja að anorexía sé einhvað góð ! Bara að þeir sem þjást af þessum hræðilega sjúkdómi séu mjög agaðir) Ég vildi að ég gæti bara sagt "Í dag ætla ég bara að borða 1500 kaloríur " og ég mundi bara gera það og ekkert vesen ! En ég ætla víst að fara einhvað í ræktina um jólin, búin að lofa Helga mínum að ég færi með honum :)
En ég ætla að halda áfram að reikna þessa tilgátuprófun í aðferðafræði....
túrúlú...
Ásta out !
hellú...
06. nóvember 2007 klukkan 16:10
Ég var að vakan, var svo obboslega sybbin þegar ég kom úr skólanum... vaknaði við það að ég var búin að slefa í koddan og lagðist með kinnina ofaní það... næs ! Allavega þá fór ég til Akureyrar seinustu helgi. Fór að hitta Helga minn og við leigðum litla íbúð á ráðhústorginu ( rétt hjá þar sem ég bjó), við kíktum á herra norðurland sem var bara mjög gaman. Það voru 2 peyjar að rappa og omg hvað það var fyndið !!! Man ekki hvað þeir heita en ef þeir verða einhvetíma með tónleika þá mæti ég pottþétt!! Kíktum svvo til Örnu í Halloween partý hjá Örnu skvísu sem var með mér í UN. Þar voru allir í svaka flottum búningum ! Þaðan lá leið okkar á sjallan ! Það var geðveikt gaman og bókstaflega allir í búning, mikið drukkið og dansað. Já og eitt....stelpur eru druslur !!! Bara að koma því á hreint, takk fyrir pent. Heilsan daginn eftir var ekki alveg að gera sig.... Ég og Helgi brunuðum svo á Húsavík, ætluðum að vera svakalega dugleg að læra en notuðum svo bara tímann í knús og video gláp :)
Svo styttist allaf meira og meira í prófin ! Maður þarf eiginlega bara að byrja núna að rifja upp allt sem maður er búin að lesa, þetta er svo mikið efni !! En vá hvað það verður gott að komast í jólafrí og þurfa ekki að gera neitt ! :)
En ég verð víst að fara að læra....
Ásta out !
Rigning..
24. október 2007 klukkan 13:34
Ég er að spá í að byggja örk ! Ég man bara ekki eftir degi á seinustu tveimur vikum sem ekki ringdi, þetta er orðið frekar óþolandi. Í minningunni var seinasta haust mjög gott, þá ringdi aldrei, var alltaf sól og frekar kalt en engin rigning og ekkert rok. Ætli þetta sé afleiðing gróðurhúsaáhrifanna ? Ætti maður kannski að fá sé "græana bíl" og gróðursetja nokkur tré til þess að hjálpa til við að minnka mengun á jörðinni okkar ? Það er spurning.
Mamma og pabbi eru að koma í dag og Helgi minn kemur á morgun þannig að það verður fullt út úr húsi hér á Strandveginum, sem er náttúrulega bara gott mál :) Svo fara Hlynur og Svandís að fara að flytja í hverfið þannig að öll fjölskyldan verður hér + amma og afi sem er ekki slæmt, næstum eins og eyjar bara, allir nálægt hvor öðrum :)
En eins og alltaf þá er mikið að gera í skólanum, skila ritgerð 30 okt, annari 1 nóv, próf 14 nóv og skila blaðinu 15 nóv. Svo er það bara að byrja að lesa fyrir jólaprófin !! Það verður nú ekki það skemmtilegasta en verður aftur á móti mjög gaman þegar það er búið :) 19. des fer ég svo að kaupa jólagjafir!! Hlakka svo til að fara að undirbúa jólin, en eins og í fyrra þá verð ég hér í Garðabænum á jólunum og örugglega í eyjum á áramótunum. Og Helgi minn ætlar að vera hjá mér í öllu jólafrínu ! ekki slæmt það :)
Ætla að halda áfram að vinna í þessari ritgerð...
Þið hafið það gott...
Ásta out !
<3
22. október 2007 klukkan 18:38
Ég var að fletta morgunblaðinu í gær og sá þar minningargrein um konu á besta aldri, þessa grein hafði sonur hennar skrifað. Hann talar um hvað hann sakni mömmu sinnar mikið og hversu mikið hann elskar hana. Þetta fékk mig til að hugsa um hvað mér þykir óendanlega vænt um foreldra mína. Þótt ég mætti velja mér hvaða foreldra sem er í heiminum þá mundi ég ekki vilja neina nema þau. Þau vilja allt fyrir mig gera og reyna að leiðbeina mér á sem bestan hátt (þau ég vilji nú ekki alltaf viðurkenna að þau hafi rétt fyrir sér en ekki ég). Án þeirra hefði ég t.d. örugglega aldrei farið í skóla í Rvk og væri örugglega strögglandi í Háskólanum ef ekki væri fyrir þau. Mér finnst ég skulda þeim svooo mikið, en ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að fara að því að borga þeim. Auðvitað reyni ég eins og ég get að standa mig í skólanum og vinnunni svo þau verði stolt af mér. Ég er bara svo ótrúlega þakklát fyrir þau og sakna þeirra mikið þar sem þau búa í Vestmannaeyjum en ég í Garðabæ. Þau eru nú samt voðarlega dugleg að koma og heimsækja litlu stelpurnar sínar og það er alltaf jafn gaman að fá þau :) Ég vona bara að þau eigi einhvertíma eftir að flytja hingað til okkar :) Ég vona að ég verði eins góður foreldri og þau eru þegar ég eignast barn.
Elska ykkur mamma og pabbi.
Ykkar Ásta Sigga.
Ný síđa...
17. október 2007 klukkan 00:05
Já ég hef ákveðið að prófa þetta bloggar.is og athuga hvort ég verði nú duglegri að blogga hér en á gömlu síðunni...:) Þarf reyndar að læra aðeins betur á þetta allt...er búið að ganga hálf brösulega að gera þessa síðu, en þetta kemur vonandi allt saman :) En nenniði að láta linkana á myspace síðurnar ykkar í comment svo ég geti látið þá í tenglana, nenni ekki að vera að leita af linkunum hjá öllum, þið skiljið ;)
En nóg að gera þessa dagan, próf, verkefni, ritgerðir og auðvitað blaðið sem ég þarf að skila í hverjum mánuði. Tíminn líður mög hratt á meðan það er svona mikið að gera...sem er bara gott, styttist í jólin ! Get varla beðið eftir jólafríinu, enda verðu Helgi líka hjá mér í tæpan mánuð ! ;)
En ég ætla svo að reyna að henda inn fleiri myndum (myndirnar sen ég setti inn voru meira svona til prufu) á eftir að láta allar Salou myndirnar inn :)
En Donna er komin uppí rúm og farin að bíða eftir mömmu sinni... so góða nótt...
Ásta out !
